Leita í fréttum mbl.is

Fool for Love

Flókið samband fólks í Texas

Í ár dregur til tíðinda í íslensku leikhúslífi þar sem nýr atvinnuleikhópur sem kallast Silfurtunglið frumsýnir leikritið Fool for Love í Austurbæ.

Fool for Love er eftir bandaríska leikskáldið Sam Shepard og hefur einu sinni áður verið sett upp hér á landi undir titlinum Sjúk í ást. Verkið ber nú sinn upprunalega enska titil en er þó leikið á íslensku. Leikstjórinn Jón Gunnar Þórðarson segir erfitt að skilgreina verkið. „Það er eiginlega ómögulegt að kalla þetta verk eitthvað ákveðið eins og ástarsögu eða spennutrylli eða gamanleik þar sem þessir eiginleikar koma allir fyrir. Verkið er kannski einna athyglisverðast fyrir hversu oft það skiptir um tón. Við höldum okkur að mestu við upprunalegu leikgerðina en höfum þó bætt örlítið við. Til að mynda hefur Kristján Kristjánsson, KK, sem er bæði tónlistarstjóri sýningarinnar og fer með hlutverk í leikritinu, samið tónlist sérstaklega fyrir verkið."

Leikritið gerist í Texas-ríki í Bandaríkjunum árið 1978. Í því segir frá þeim May og Eddie sem eiga í flóknu sambandi sem einkennist af ást og ofbeldisfullum samskiptum. Auk KK eru leikarar í verkinu þau Sveinn Ólafur Gunnarsson, Þóra Karitas og Magnús Guðmundsson. „Andi áttunda áratugar síðustu aldar og andi bandaríska vestursins svífur yfir vötnum í þessu verki. Svo vel vill til að þessi andi passar einmitt stórvel inn í sýningarrýmið á efri hæð Austurbæjar þar sem við sýnum, en þar var á áttunda áratugnum skemmtistaðurinn Silfurtunglið, sem leikhópurinn dregur nafn sitt af.

Innréttingarnar í húsinu kallast fullkomlega á við stemninguna í verkinu og því má segja að leikhúsreynslan hefjist um leið og gestir stíga inn úr dyrunum. Við höfum aukið enn á áhrifin með því að opna vestra-bar í anddyrinu og því er tilvalið fyrir gesti að fá sér einn drykk fyrir sýninguna og upplifa hughrifin sem húsnæðinu fylgja," segir Jón.
Uppsetningin er fyrsta verkefni leikhópsins Silfurtunglið sem hyggur þó á frekari landvinninga í framtíðinni. Kjarni hópsins er nýútskrifað leikhúsfólk, en hópurinn var fljótur að vinda upp á sig. „Silfurtunglið telur nú um tuttugu manns sem starfa á ólíkum sviðum innan leikhússins, bæði leikarar, tónlistarmenn, myndlistarmenn, hönnuðir og svo mætti lengi telja. Í íslensku leikhúslífi þarf maður einfaldlega að skapa sér sín eigin tækifæri og þess vegna varð Silfurtunglið til," segir Jón.

Leikritið Fool for Love verður sýnt í Austurbæ út janúar. Miða má nálgast í miðasölu Austurbæjar og á vefnum www.midi.is og kostar miðinn 2.500 kr.


Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Silfurtunglið
Silfurtunglið

Silfurtunglið hýsir metnaðarfullt leikhúsfólk.

Leikstjóri: Jón Gunnar Þórðarson

tónlistarstjóri: KK

ljósahönnun: Jón Þorgeir Kristjánsson

búningahönnuður: Rannveig Eva Karlsdóttir

útlitshönnun: Mekkín Ragnarsdóttir

hljóðhönnun: Sindri Þórarinsson

aðstoðarleikstjóri: Valdís Arnardóttir

hreyfihönnun: Hannes Þór Egilsson

leikarar: Þóra Karítas, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Magnús Guðmundsson og KK

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband